Monday, January 23, 2012

Vetur konungur

Ég verð að segja að það er komin smá fiðringur í mig.  Er allavega farin að skipuleggja sumarið í huganum.  Er farin að velta fyrir mér tegundum sem mig langar til þess að prufa í sumar.  Ég kíki venjulega inná síðu á fésbókinni sem heitir Ræktaðu garðinn þinn og sé að sumir eru farnir að sá fyrir sumarblómunum.  Ég ætla að byrja forræktunina í lok febrúar, byrjun mars.  Það er að minnsta kosti stefnan núna.

Fór út í garð nýlega og þá blasti við mér eyðileggingin.  1 af þremur eplatrám mölbrotið.  Festing á stuðningsvír hafði gefið sig vegna snjóþyngsla. 

mölbrotið eplatré er sorgleg sjón

Heldur leiðinlegt, gæti nú samt alveg bjargast en það kemur að sjálfsögðu betur í ljós í vor.  Ég veit ekki hvaða yrki þetta er, merkimiðinn er á kafi í snjó.

Grænkálið er gaddfreðið en gæti alveg lifnað við ef kári sleppir tökunum einhverntímann.

grænkál í vetrarbúningi
Garðurinn er búinn að vera á kafi í snjó í langan tíma 

nokkur strá í snjónum

Ég hef lengi ætlað að punkta hjá mér hvernig ræktunin gekk síðasta sumar og hvað mig langar að gera næsta sumar.  

Kartöflurnar verða líklega alltaf efstar á lista:  Í ár ræktaði ég 5 tegundir, rauðar, gullauga, bláar, möndlu og premier.  Mér fannst uppskeran ekkert til að hrópa húrra fyrir, arfinn var allt að drepa, það var vottur af kláða í þeim og sprettan misjöfn.  Ég er á síðustu kílóunum núna.

stæstu möndlurnar 

möndlurnar eru mjög góðar 

bláar eru svolítið skemmtilegar útlits en bragðið ekkert sérstakt

Hugsa að ég einbeiti mér að rauðum í sumar, þær eru bestar, reyndar eru möndlurnar mjög góðar líka og komu mjög vel út brúnaðar með jólasteikinni.

Ég ætla að halda áfram að rækta tómata, fannst það svolítið skemmtilegt.

Steinselja er fastagestur á listanum hjá mér.  Hún er alltaf góð, vex vel, svo er hægt að frysta hana, á hana enn til í frystinum.  Ætla að rækta enn meira af henni næsta sumar, vefja henni upp í plastpoka og frysta eins og sýnt er hér:http://awaytogarden.com/growing-and-storing-a-year-of-parsley.
Ég á líka grænkál í frystinum.

Timian er eitt af mínum uppáhaldskryddum en mér hefur ekki gengið vel að rækta það.  Alltaf verið hálf ræfilslegt hjá mér.  Ætla að reyna að vanda mig sérstaklega vel næsta sumar.

Baunirnar voru mjög góðar og uxu vel en í ár ætla ég að forrækta þær því annars eru þær of seinar á sér og eyðileggjast í haustfrostunum áður en þær eru hættar að gefa af sér.

Svartræturnar voru góðar, Spergilkál og hnúðkál sælgæti vaxa vel, hef keypt þetta forræktað.  Reyni kannski að forrækta í ár ef ég kem mér upp góðri aðstöðu með ljósi eins og ég er með á planinu.

Allskyns Blaðsalat er nauðsynlegt.  Var með lítið beð úti í heimilisgarðinum.  Virkilega gott.  Graslaukar og Vorlaukar eru einfaldir og góðir

Sáði líka fyrir matlauk, hann var lítill og fallegur en því miður komust í hann þjófar.  Ætla að reyna þetta aftur á næsta ári.

Í ár ætla ég að rækta Sellerí en það er nýjasta æðið hjá mér.  Ætla líka að reyna við Aspas ef ég næ í fræ.
Agúrka  og Zucchini eru líka á lista.  Ætli stofan hjá mér verði ekki undirlögð af plöntum.

Rauðrófurnar eru ómissandi.  Mér fannst koma betur út að sá þeim beint frekar en að planta forræktuðum.  Þær hlupu í njóla hjá mér.  Mun sá fyrir enn fleirum í ár.

Listinn er alls  ekki tæmdur, en segi þetta gott í kvöld

vetrarstemning