Var sein með öll vorverk þetta árið, ekki bara vegna kulda í maí heldur einnig vegna anna. Ég forræktaði dill, tvenns konar Lavender, fennel og oregano Keypti svo forræktað brokkolí (gekk illa að forrækta það í fyrra). Ég sáði fyrir blaðsalati, spínati, rukkola. Einnig fyrir rauðrófum, baunum, steinselju og meira dilli. Setti niður 2 konar kartöflur, rauðar og gullauga. Nú er allt komið niður á sinn stað sem betur fer.
Ég var ánægð með að aspasinn virðist hafa lifað af veturinn og glittir nú í nokkra sprota.
Sýnist þetta vera fennel. |
Lavender |