Showing posts with label vorlaukur. Show all posts
Showing posts with label vorlaukur. Show all posts

Wednesday, May 30, 2012

Plantað og sáð

28. maí sáði ég fyrir Steinselju, vatnakarsa,vorlauk salati kamillu, klettasalati, radísum og dilli í Smálöndum.  Viku áður sáði ég fyrir gulrótum og nokkrum dögum áður fyrir rauðrófum og svartrótum  Ég plantaði líka út lauknum og brokkolíi sem ég var búin að forrækta.  Þá á ég bara eftir að sá fyrir baunum og planta út Fenneli sem ég er að herða núna. Mér áskotnuðust tvær grænkálsplöntur og einnig tómatplöntur af yrkinu Ailsa Craig sem mér skilst að geti verið harðgerðir og er ég að herða þær plöntur núna og ætla að hafa þær úti í keri í garðinum.

Kartöflurnar eru komnar niður, Premium og svo einhverjar sortir sem ég fann í garðinum sem við vorum að fá í sumar.

Eplatrén mín eru með einhverjum lúsakvikindum og kom Askur Tré Asparson og tók myndir af þeim og ætlar að láta greina þær og gefa mér ráð um hvað hægt sé að gera.  Toppurinn brotnaði líka á Savstaholm trénu mínu, líklega hefur stelpan mín verið að hamast í vírnum sem það er bundið við og það ekki nægilega fest.  Margt er að varast.

Ég er farin að uppskera radísur, graslauk og steinselju síðan í fyrra.  Stutt er líka í salat en eitthvert kvikindi, líklega köttur vill fara í salatbeðið og liggja þar og róta upp plöntunum.

Kartöflurnar tilbúnar til niðursetningar

Komin á sinn stað í beðið

Fallegir túlipanar hjá nágranna mínum í Smálöndunum

Forræktaði nokkrar baunir sem eru komnar í pott í garðinum

Fennel

Rósmarín, ætla að setja það í ker 

Tómatar sem ég fékk hjá Arnari nágranna í Smálöndum, Ailsa Craig

Salatið að koma til 

Fyrsta uppskera af radísum

Blað af eplatré, þau eru öll sýkt hjá mér

Mjög léleg mynd af lúsinni

Brokkolíplanta komin á sinn stað

Laukurinn 

Sólblóm

Moldin sigtuð

Verið að undirbúa beð

Gott að gera uppdrátt af garðinum svo maður viti hvað er hvað

Sunday, April 22, 2012

Fyrsti vinnudagur í Smálöndunum

Það var gott veður um helgina og við notuðum tækifærið og fórum uppí Smálönd og byrjuðum undirbúningsvinnuna fyrir sumarið.  Reyta arfa og stinga upp beðin.

Ég er líka búin að vera að sá á fullu og ég á svo mikið af fræjum að ætla mætti að ég væri með heilan búgarð og fullt af gróðurhúsum en ekki nokkurra fermetra skika til ræktunar.

Klippti eplatrén sem var nú ekki stór aðgerð þar sem þau eru bara litlar píslir enn, samt er mikilvægt að gera það rétt frá byrjun og ég er að lesa mér til um réttar aðferðir.

Ég sáði líka fyrir salati, radísum og vorlauk í beð með plasti yfir.











Eplatré, búið að klippa af toppnum

Áður en klippt var af toppnum

og eftir, klippa skal nálægt brumi á ská.  

heimasætan að hjálpa foreldrunum í Smálöndunum

Hér glittir í hvítlaukana mína til hægri á myndinni. 
Í þetta beð sáði ég salati, radísum og vorlauk

Monday, January 23, 2012

Vetur konungur

Ég verð að segja að það er komin smá fiðringur í mig.  Er allavega farin að skipuleggja sumarið í huganum.  Er farin að velta fyrir mér tegundum sem mig langar til þess að prufa í sumar.  Ég kíki venjulega inná síðu á fésbókinni sem heitir Ræktaðu garðinn þinn og sé að sumir eru farnir að sá fyrir sumarblómunum.  Ég ætla að byrja forræktunina í lok febrúar, byrjun mars.  Það er að minnsta kosti stefnan núna.

Fór út í garð nýlega og þá blasti við mér eyðileggingin.  1 af þremur eplatrám mölbrotið.  Festing á stuðningsvír hafði gefið sig vegna snjóþyngsla. 

mölbrotið eplatré er sorgleg sjón

Heldur leiðinlegt, gæti nú samt alveg bjargast en það kemur að sjálfsögðu betur í ljós í vor.  Ég veit ekki hvaða yrki þetta er, merkimiðinn er á kafi í snjó.

Grænkálið er gaddfreðið en gæti alveg lifnað við ef kári sleppir tökunum einhverntímann.

grænkál í vetrarbúningi
Garðurinn er búinn að vera á kafi í snjó í langan tíma 

nokkur strá í snjónum

Ég hef lengi ætlað að punkta hjá mér hvernig ræktunin gekk síðasta sumar og hvað mig langar að gera næsta sumar.  

Kartöflurnar verða líklega alltaf efstar á lista:  Í ár ræktaði ég 5 tegundir, rauðar, gullauga, bláar, möndlu og premier.  Mér fannst uppskeran ekkert til að hrópa húrra fyrir, arfinn var allt að drepa, það var vottur af kláða í þeim og sprettan misjöfn.  Ég er á síðustu kílóunum núna.

stæstu möndlurnar 

möndlurnar eru mjög góðar 

bláar eru svolítið skemmtilegar útlits en bragðið ekkert sérstakt

Hugsa að ég einbeiti mér að rauðum í sumar, þær eru bestar, reyndar eru möndlurnar mjög góðar líka og komu mjög vel út brúnaðar með jólasteikinni.

Ég ætla að halda áfram að rækta tómata, fannst það svolítið skemmtilegt.

Steinselja er fastagestur á listanum hjá mér.  Hún er alltaf góð, vex vel, svo er hægt að frysta hana, á hana enn til í frystinum.  Ætla að rækta enn meira af henni næsta sumar, vefja henni upp í plastpoka og frysta eins og sýnt er hér:http://awaytogarden.com/growing-and-storing-a-year-of-parsley.
Ég á líka grænkál í frystinum.

Timian er eitt af mínum uppáhaldskryddum en mér hefur ekki gengið vel að rækta það.  Alltaf verið hálf ræfilslegt hjá mér.  Ætla að reyna að vanda mig sérstaklega vel næsta sumar.

Baunirnar voru mjög góðar og uxu vel en í ár ætla ég að forrækta þær því annars eru þær of seinar á sér og eyðileggjast í haustfrostunum áður en þær eru hættar að gefa af sér.

Svartræturnar voru góðar, Spergilkál og hnúðkál sælgæti vaxa vel, hef keypt þetta forræktað.  Reyni kannski að forrækta í ár ef ég kem mér upp góðri aðstöðu með ljósi eins og ég er með á planinu.

Allskyns Blaðsalat er nauðsynlegt.  Var með lítið beð úti í heimilisgarðinum.  Virkilega gott.  Graslaukar og Vorlaukar eru einfaldir og góðir

Sáði líka fyrir matlauk, hann var lítill og fallegur en því miður komust í hann þjófar.  Ætla að reyna þetta aftur á næsta ári.

Í ár ætla ég að rækta Sellerí en það er nýjasta æðið hjá mér.  Ætla líka að reyna við Aspas ef ég næ í fræ.
Agúrka  og Zucchini eru líka á lista.  Ætli stofan hjá mér verði ekki undirlögð af plöntum.

Rauðrófurnar eru ómissandi.  Mér fannst koma betur út að sá þeim beint frekar en að planta forræktuðum.  Þær hlupu í njóla hjá mér.  Mun sá fyrir enn fleirum í ár.

Listinn er alls  ekki tæmdur, en segi þetta gott í kvöld

vetrarstemning



Sunday, September 4, 2011

Svartrætur

Ég er aðeins farin að taka upp Svartræturnar mínar.  Er raunar bara að grisja þær en það eiga að vera 10 cm á milli plantna.  Þær eru ekki mjög sverar og erfitt er að ná þeim, þær vilja brotna.  Þarf líklega skóflu og grafa þær upp.  Mér sýnist að það eigi að skræla þær, leggja þær í sítrónuvatn og sjóða svo í 15-20 mínútur og ætla ég að prófa það.  Borða svo með smjöri.

Annars er ég að týna baunir, taka upp gulrætur, rauðrófur, salat, vorlauk, brokkolí og kartöflur sem enn eru fremur smáar og ræfilslegar.

Gerði mér annars vegar gulrótarsafa með epli og hins vegar gulrótar og rauðrófusafa.  Báðir voru mjög góðir.

Brokkolíplönturnar eru enn að gefa af sér en þær líta ekki vel út, stór og mislit blöð.  Ég setti bara hænsnaskít á þær, engan annan áburð.

Ég klippti sólberjarunnana mína hressilega um helgina.  Fann líka pínulitlar sólberjaplöntur undir runnunum sem teknar voru og settar í pott.


Sáði líka fyrir Birki en ég týndi fræ af fallegum birkitrjám í Laugardalnum, þau eru með ljósum beinum stofni.

Brokkolíplönturnar

Hluti af uppskerunni, fennel,gulrætur og rauðrófur

vorlaukur

baunir

svartrætur
 

Friday, July 1, 2011

Garðurinn heima

Í bakgarðinum mínum í Kleppsholtinu er ég líka með matjurtaræktun.  Mér finnst ágætt að hafa við höndina kryddin og salat, það sem ég nota á hverjum degi.  Er með 2 kassa og svo lítið kryddjurtabeð.  Ég er líka með jarðaber, hindber, sólber,svartylli og svo litlu ávaxtatrén.  Held ég sé ekki að gleyma neinu. 

Salat og vorlaukur er í þessum kassa

Þetta grænkál er sjálfssáð í garðinum mínum.  Eitthvað er eins og það hafi étist. 

Svartyllirinn er þakinn blómaklösum sem ég er nokkuð viss um að verði alveg tilbúnir til saftgerðar daginn sem ég fer í gönguna mína eftir hálfan mánuð.

Ávaxtatrén hafa það gott og hafa vaxið að mér sýnist.

Var með 2-3 grænkálsplöntur bæði rauðar og grænar sem settu fræ hjá mér í fyrra og í vor sá ég að beðið var fullt af litlum plöntum

ég týndi þessar...

.... og setti beint í súpuna. 


Um helgina stendur til að klára beðið fyrir ávaxtatrén, ég er að berjast við skriðsóley sem búin að breiða sér útum allan garð.  Ótrúlega seig planta.