Hvítasunnuhelgin var vel nýtt í garðvinnunni. Ég fór í Smálönd í gær og reytti arfa, sáði fyrir sléttblaða steinselju, blönduðu salati, hrokkinni steinselju og vorlauk. Þá er sáðbeðið mitt alveg fullt. Farið var að glitta í radísurnar, annað ekki.
Forræktuðu plönturnar voru misfallegar
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEgMeAopRNVh1e9tQgtpyDLaLUxiByBTysO_kFkTmwEoKZuxYW8VLkRkIH4FWWF06FtLeKqkbOhJjzz6BZtPrsfwhyBFiCjlxwLb0pspNDkhlPPeKAem1EmLBOU0dA9o478KGpTShn9AWPU/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+021.JPG) |
Hnúðkál |
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhSL31Vb99lZKjzWPBrlA33dUrU_LgLnBvJM9EdAEA6XzBYUIllTb4o0LNGQfQU27yFW86zb7VdcGIWEuaeBFNvd6LfYZjUBgy2UgmlC5Up_xMPLWNmLuN2r1nfYvzNzFfjiX7AGQ3U1ds/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+022.JPG) |
brokkolívesalingur sem ég forræktaði, er þó ekki búin að gefa upp alla von með hann |
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEi_jjW3xHAGjzygNjSPXy6XTP7S1NpqbwORlZldb-jj5LhdKW41o4Zt6JPgimKU0MbpNGeIqnjXNB68Vu2unanpvFgL34qjZMA39i6wJ0DzxYZs6NzpJ4-YC3ToMAO-Xy2SBOxQuSQk71s/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+023.JPG) |
Keypt Brokkolí |
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEh2xEUVRQBauKgSm6mGcGlb25GYpKYC8H_Ccw4ThqG230JBjB1TFYIMd78qItS8cLuYwrXuC_PB21-rKXJHFywCSPCxSZ1CO7SFuINMXnxHq7VrT51ozj9y86Kme1V4wXw1YaQOHiCVenw/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+024.JPG) |
Matlaukur, eigin ræktun, ósköp vesæll greyið |
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEhPIdCHRLu9PxvtZpkPUnGMJjWQv_eipZfuH9dyR8c7gGT0OIzbf-H04hjLWo9I3PwzRm5wGDpNF5QAtECc0BJtkW37FPG5EzhiN3ZZe3O_LwdgnKbzb6uiVxwW-lMX8Kuc0j3HwpvBjzc/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+025.JPG) |
Fennel sem ég forræktaði, ekki sú al fallegasta
|
Það er ekki alveg einfalt að forrækta sjálfur ef bestu aðstæður eru ekki fyrir hendi. Ég þarf líklega að byrja heldur fyrr á næsta ári.
Það var farið að glitta í kartöflugrös á premier kartöflunum mínum.
Þá var haldið heim á leið.
Settur saman safnkassi en hann var keyptur í stórri byggingarvöruverslun:
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEia8txrU9bdUuDvDQ3VUQK7htJ3d0w6uM6wJu32HZTclWNTzoHeg-dKBGj3vlhaKzRvle69CQCpRvSPXtSxeryb0FD_pCChHKdjXbAUracMnElhspkD4uqyhTq7OMB364oyNndtDkLyVbk/s320/j%25C3%25BAn%25C3%25AD+006.JPG) |
heimasætan setur saman safnkassa |
Safnhaugagerð hefur lengi verið á dagskrá og hefur verið stunduð óformlega með því að hrúga garðaúrgangi á ýmsa staði í garðinum. Nú er stefnan að hafa þetta skipulagðara. Neðst í kassann skal setja greinar, svo á blandan að vera 2/3 grænt efni (gras, jurtir, grænmetisafskurður) og 1/3 brúnt efni ( þurr lauf, greinar, hey, dagblaðapappír).
Þá var haldið áfram að undirbúa beðið þar sem eplatrén verða staðsett. Beðið var fullt af allskyns dótaríi, skriðsóley, skrautgrasi,gamalli girðingu,geitaskeggi, sólberjarunnum, leifum af gömlu víðilimgerði sem er búið að taka tímann sinn að grafa upp. Mikið verk er óunnið enn.
Huvitus eplatréð og súrkirsiberjatréð var umpottað í 7,5 l pott, gerð var blanda af 1/3 mold,1/3 fínum vikur og 1/3 sterkum sveppamassa og trén sett í.
Búið er að kaupa staura og vír til að setja upp stuðning fyrir veggtrén, þetta verður rosa flott eftir 10 ár