Friday, June 10, 2011

Meira um ávaxtatré

Í morgun voru gráðurnar bara 3 og Esjan hvít. 

Ávaxtatrén mín eru enn í pottunum sínum upp við húsvegg.  Það er heldur kalt til að planta þeim finnst mér.  Ég er mikið að spá í hvernig ég á að koma þeim fyrir í litla garðinum mínum og er að hugsa um að búa til veggtré. 
Fann þessa mynd á netinu




Þetta form er kallað Espalier. Smám saman vaxa þau og fylla upp í allt það pláss sem þau hafa.   Hentar vel í litla garða en kostar töluverða vinnu við að snyrta trén. 
Súrkirsiberjatréð er nú víst bara runni um 2 m á hæð og breidd.  Ætti að gera komið honum fyrir einhversstaðar á góðum stað.

1 comment:

  1. ohh það verður æðisleg vinna að snyrta þau og stúdera :) Kynnast hverju laufblaði :)

    ReplyDelete