Thursday, June 2, 2011

Smíðavinna

Við hjónin fórum í Smálöndin í dag með mótatimbur og verkfæri og smíðuðum ramma í kringum eitt beð (húsbóndinn sá reyndar aðallega  um smíðavinnuna). 







Tilbúið.  Ég er mjög ánægð með það.

Síðan sáði ég fyrir gulrótum, rauðrófum, svartrótum og radísum. 

Einnig sáði ég fyrir sykurbaunum í annað beð.  Það fer heilt beð í þær.

Ég plantaði forræktuðum lauk og fennel.  Þá fer matjurtagarðurinn minn alveg að verða tilbúinn. 

1 comment:

  1. Snilld!. . hlakka til að sjá þegar garðurinn verður orðinn grænn :)

    ReplyDelete