Wednesday, June 29, 2011

Njólaslagur

Það er ýmislegt annað en matjurtir sem vex í Smálöndunum meðal annars njóli sem er ekki velkominn.  Í dag var ráðist til atlögu við hann

Best er að stinga hann upp til að ná allri rótinni.
Hér kemur svo skýrsla um stöðuna í Smálöndum í dag:
Brokkolíið dafnar vel. 

Smá munur á keyptum plöntum og forræktuðum heima, ég byrjaði líka fremur seint á forræktuninni

Hnúðkálið lítur vel út.

Forræktaðar rauðrófur.  Held það verði rauðrófur í öll mál hjá mér í haust

Matlaukurinn er ekki mjög fallegur

Fennel


Svartrót.  Spennandi nýjung.  Kölluð aspas fátæka mannsins í Svíþjóð.

Rauðrófur sem ég sáði fyrir.  Þær líta ágætlega út

Gulrætur farnar að skjóta upp kollinum.

4 comments:

  1. Þetta lítur vel út hjá þér! Er ekki hægt að brugga úr Njólanum gera eitthvað nítilegt/nýtilegt (vá er nýtilegt/nítilegt orð sem er til) hehehe :)

    ReplyDelete
  2. Takk,
    jú það er hægt að nota blöðin af ungum plöntum í td súpu. Þyrfti nú bara að kynna mér frekari nytjar...

    Lára

    ReplyDelete
  3. Njóli (heimula, heimulunjóli eða fardagagras) (fræðiheiti: Rumex longifolius) er stórvaxin fjölær jurt af súruætt. Hann hefur flust til Íslands af mannavöldum og vex í dag einkum í kauptúnum og við sveitabæi. Njóla fjölgar mikið þar sem áburðarríkt ræktarland hefur verið yfirgefið. Blóm njóla eru græn. Plantan var notuð sem lækningajurt og fersk njólablöð eru talin holl.

    Njóli var notaður sem litunarjurt á Íslandi. Úr blöðum hans fæst grænn og sterkgulur litur.

    Blöðin á njóla (heimilisnjólablöðkur) kallast fardagakál og voru fyrr á tímum elduð sem kálgrautur og þótti gott að hafa túnsúrur saman við.

    ReplyDelete
  4. gleymdi að nefna að ofangreint er af Wikipediu

    ReplyDelete