Sunday, July 10, 2011

Óværa

Í dag sá ég að óboðnir gestir voru sestir að á Sólberjarunnunum mínum.  Efstu blöðin voru krumpuð og innan í þeim voru grænar litlar pöddur ásamt svörtum litlum flugum og einhverjum hvítum flygsum.  Geri ráð fyrir að um sé að ræða blaðlús.  Þá er bara spurning hvað sé til ráða.  Ég vil ekki eitra það er víst.


Hér kemur mynd af Svartyllinum.  Hann er þakinn blómum.  Síðustu ár hefur hann blómstrað tvisvar að sumri og þroskað ber. 

No comments:

Post a Comment